Færsluflokkur: Bloggar

Kristófer Haukur

Elsku gullmolinn okkar var skírður á laugardaginn s.l. Hann fékk nafnið Kristófer Haukur, í höfuðið á afa sínum og móðurbróður sem eru báðir látnir eins og þið flest vitið. Það var því tilfinningaþrungin stund þegar að nafnið var gert opinbert og vorum við foreldrarnir með augun full af tárum eins og fleirri viðstaddir. 

Vildi bara láta ykkur vita, þau fáu sem líta hérna við á "rúntinum"Wink

*kossar og knús* 

www.forskot.com


06.07.08

Sólargeislinn okkar kom í heiminn þann 6. júlíInLove Hann var heilar 18 merkur (4495 gr) og 52 cm, með ljós skollitað hár og blá augu. Algjör draumur í dósSmile

DSC05557


22. júní 2008

Í dag hefði pabbi orðið sextugur, blessuð sé minning hans. Hann var ungur maður þegar að hann féll frá eiginkonu og þremur ungum börnum, aðeins á 42. aldursári... já það er sorglegt þegar að fólk í blóma lífsins hverfur yfir móðuna miklu. Ég er nú samt það saklaus að ég trúi því að þegar ég kveð þennan heim þá muni ég eiga endurfund með honum og Hauki bróðurBlush

Annars er allt ágætt að frétta af okkur... ég er að vísu búin að vera með fyrirvaraverki í rúmar 2 vikur og langar að biðja ykkur um að senda mér hríðarstrauma... langar sjúklega að fá drenginn í hendurnar í dagWink


Tæpu ári seinna....

Maður er nú meira nördið.... ekki búin að blogga í tæpt árGasp rosalega er tíminn fljótur að líðaGasp

Yndislegt að sumarið sér komið! Allt annað að vera á steypinum yfir sumar tímann heldur en um hávetur í brjáluðu veðri, klofandi skaflaShocking Annars er biðin bara tekin við hjá mér þar sem að Brynja Björk er laus úr gipsinu... kveið því mest að pilturinn myndi láta sjá sig á meðan að hún væri enn farlama... þannig að hann má nú alveg fara að láta sjá sig hvað úr hverjuWink þó svo að það séu nú ennþá alveg 24 dagar í settan dagTounge

 Jamm og jæja.... langaði bara að henda niður eins og einni færslu bara upp á djókið, hver veit nema að maður komist í eitthvað bloggstuð þessa síðustu daga áður en að gulldrengurinn kemur í heiminnSmile

  

 

 

www.forskot.com

 


Klukkuð!!!!!!!!!!!!!

Jæja gott fólk, ég er það lélegur bloggari að Ester og Elín eru búnar að klukka migTounge

Ég á sem sagt að telja upp 8 hluti um mig sem enginn veit..... verst hvað ég kjafta alltaf mikið um sjálfa migLoL

1. Ég er myrkfælin

2. Ég er örugglega með hátt í 100 ör á líkamanum

3. Ég var einungis búin að vera með Bigga í 3 mánuði þegar að ég varð ófrísk af Brynju Björk

4. Ég hef ALLTAF rétt fyrir mérTounge

5. Þegar að ég var lítil þá dreymdi mig um að vera lögfræðingur, þeir gátu nefnilega "rifið kjaft" í sjónvarpsþáttunumWink 

6. Ég tek "gleðipillur"W00t

7. Það var keyrt á mig á 100 km/klst þegar að ég var labbandi fyrir tæpum 10 árum

8. Ég borða kæsta skötuWhistling

Ég ætla að klukka Beggu, Oscar, Brynju, Birnu, Heimi, Berg, Kristján og Gróu

*kossar og knús*

Katrín

p.s. lofa að vera duglegri að bloggaBlush 

Ég er stolltur Do It meðlimur

 


Ferðasaga... hreint út sagt ÆÐI

Ég ætlaði að fara á kaffihús með mömmu og Brynju systur á fimmtudagskvöldið. Þegar að ég ætlaði að skipta um föt var ég að furða mig á því hvar öll fötin mín voru en spáði svo ekkert meira í því.
Þegar að við vorum á leið út úr húsi var mér tjáð að ég væri á leið í óvissuferð, þannig að ég kvaddi mann og barn og hélt út í bíl.
Þegar að við höfðum sótt Leó bróður var förinni haldið á "kaffihús", það var keyrt í gegnum Hafnarfjörð, framhjá Grindavík og svo inn í gamla bæinn í Keflavík.... ég var farin að hristast úr hlátri yfir mömmu og Brynju sem voru að þykjast finna eitthvað hús, hahaha.
Svo lá leiðin að Leifsstöð.... ég fékk ekkert að vita fyrr en við vorum að tékka okkur inn og maðurinn spurði.."Stokkhólmur eða Kaupmannahöfn" - og það var Köben:)
En til að gera langa sögu stutta þá fórum við 5 til Köben, ég, mamma, Brynja sys, Leó bró og Sverrir Leó sonur Brynju og leigðum alveg frábæra íbúð í Fredriksberg. Ég hitti Önnu Lilju á flugvellinum en hún var að fara til Köben að leita sér að íbúð. Það fyndna við það er að svo vorum við að leigja íbúð í sama húsi og Anna Lilja og vinkonur hennar.... þannig að ég skellti mér á djammið með þeim eitt kvöldið:)
Það var sem sagt mikið verslað, mikið borðað og drukkið mikið öl um helginaWink
*kossar og knús*
Katrín

Just Do It


Ekki vildi ég vera mamman.....

.... og lesa allar bloggfærslurnar um þessa fréttWoundering Ég ætla ekki að dæma einn né neinn, ég var ekki á staðnum.

Enn yfir í annað alvarlegra mál - Ásta Lovísa lést í dag. Ég þekkti þessa stelpu ekki neitt en las stundum bloggið hennar og dáðist af baráttuþreki hennar. Þessi stelpa var ótrúleg hetja! Mig langar að hvetja alla sem lesa þetta að biðja fyrir börnunum hennar þremur, ég finn svo til með þeimUndecided

Elsku vinir, njótið lífsins! Það er alltof stutt til að sleppa því

*kossar og knús*

Ég er stoltur Do It - meðlimur


mbl.is Lítil stúlka hætt komin í sundlaug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ósáttur.... hmmm....

Ég myndi nú frekar segja að hann væri í fýluWoundering Ætli tilvonandi samgönguráðherra muni fá minni séns en aðrir í ræðustólnum með Sturlu sem forseta Alþingis????

 

Ég er í Do It - hópnum


mbl.is Sturla: Ósáttur við að hverfa úr samgönguráðuneytinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glataður bloggari

Jæja gott fólk!

Núna er ég ekki búin að blogga í rúman mánuð og geri aðrir beturBlush ég skal reyna að standa mig betur hér eftirWink

Það er allt gott að frétta af okkur famelíunni. Ég er búin að ljúka 1. árinu í viðskiptafræðinniGrin gekk barasta vel í prófunum og er byrjuð að vinna. Svo erum við komin með heitan pott í garðinn þannig að maður ætti að getað sólað sig eitthvað í sumarTounge með bjór í annarri og sígó í hinniTounge

*kossar og knús á liðið*

Katrín

Ég er í Do It-hópnum


Guðni kallinn

153071_gudni_agustsson Þó svo að ég sé engin framsóknarkona þá þykir mér alltaf vænt um Guðna kallinnSmile Hann og pabbi voru saman í bændaskólanum á Hvanneyri í denn og svo er ég vinkona dóttur hans, Agnesar. Hann er góður maður hann Guðni.Smile

Ég er ekki frá því að hann hafi halað inn einhver atkvæði fyrir framsóknarflokkinn á þessu viðtali (sjá link fyrir neðan) þar sem hann gefur í skyn að framsókn ætli ekki að vera í ríkisstjórn aftur með íhaldinu sem eru eins og kóngar í ríki sínu og halda að þeir stjórni landinu einirLoL hahaha... Ég er svo að vona að íhaldið verði sett út í kuldan í a.m.k. eitt kjörtímabil svona aðeins til að kæla í þeim rostann

Segjum þetta gott kæru lesendurTounge

Over and out

Katrín sem vill endilega að þið kommentið á færslurnar hjá sérWhistling

Heimasíða

 


mbl.is Guðni: Sjálfstæðisflokkurinn virðist stikkfrí í umræðunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband