Ferðasaga... hreint út sagt ÆÐI

Ég ætlaði að fara á kaffihús með mömmu og Brynju systur á fimmtudagskvöldið. Þegar að ég ætlaði að skipta um föt var ég að furða mig á því hvar öll fötin mín voru en spáði svo ekkert meira í því.
Þegar að við vorum á leið út úr húsi var mér tjáð að ég væri á leið í óvissuferð, þannig að ég kvaddi mann og barn og hélt út í bíl.
Þegar að við höfðum sótt Leó bróður var förinni haldið á "kaffihús", það var keyrt í gegnum Hafnarfjörð, framhjá Grindavík og svo inn í gamla bæinn í Keflavík.... ég var farin að hristast úr hlátri yfir mömmu og Brynju sem voru að þykjast finna eitthvað hús, hahaha.
Svo lá leiðin að Leifsstöð.... ég fékk ekkert að vita fyrr en við vorum að tékka okkur inn og maðurinn spurði.."Stokkhólmur eða Kaupmannahöfn" - og það var Köben:)
En til að gera langa sögu stutta þá fórum við 5 til Köben, ég, mamma, Brynja sys, Leó bró og Sverrir Leó sonur Brynju og leigðum alveg frábæra íbúð í Fredriksberg. Ég hitti Önnu Lilju á flugvellinum en hún var að fara til Köben að leita sér að íbúð. Það fyndna við það er að svo vorum við að leigja íbúð í sama húsi og Anna Lilja og vinkonur hennar.... þannig að ég skellti mér á djammið með þeim eitt kvöldið:)
Það var sem sagt mikið verslað, mikið borðað og drukkið mikið öl um helginaWink
*kossar og knús*
Katrín

Just Do It


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Æðislegt honey...

Ég fer svo í flugvélina á laugardag

Love

Sveil

Svala (IP-tala skráð) 7.6.2007 kl. 19:31

2 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

vá þetta hefur verið æðislegt..

Brynja Hjaltadóttir, 8.6.2007 kl. 00:48

3 Smámynd: Ester Júlía

Vá GEGGJAÐ!  Vildi að mér yrði eitthverntímann boðið í svona óvissuferð :/.  En æðislegt hjá þeim að gera þetta fyrir þig!!  Knús

Ester Júlía, 13.6.2007 kl. 07:02

4 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Katrín...farðu að skrifa eitthvað skemmtilegt..

Brynja Hjaltadóttir, 18.6.2007 kl. 12:29

5 identicon

hæ sæta... það var nú gott að það var skemmtilegt í óvissuferðinni þinni sem þú hafðir ekki hugmynd um og enginn api náði að skemma neitt surprisið fyrir þér.... það var nú gott :)

kiss kiss

Inga Birna (IP-tala skráð) 18.6.2007 kl. 13:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband