Í dag hefði pabbi orðið sextugur, blessuð sé minning hans. Hann var ungur maður þegar að hann féll frá eiginkonu og þremur ungum börnum, aðeins á 42. aldursári... já það er sorglegt þegar að fólk í blóma lífsins hverfur yfir móðuna miklu. Ég er nú samt það saklaus að ég trúi því að þegar ég kveð þennan heim þá muni ég eiga endurfund með honum og Hauki bróður
Annars er allt ágætt að frétta af okkur... ég er að vísu búin að vera með fyrirvaraverki í rúmar 2 vikur og langar að biðja ykkur um að senda mér hríðarstrauma... langar sjúklega að fá drenginn í hendurnar í dag


benna
estro
gordon
gbergur
olafurfa
bubu
tommi
gassih
kiddisi
andreaj
arh
ellasprella
svalan
alfarnir




Athugasemdir
Til hamingju með pabba þinn í gær elsku Katrín. Ég vona að þú farir að fá barnið í hendurnar dúllan mín. Ég reyni hvað ég get að senda þér huglæga hríðarstrauma
Ester Júlía, 23.6.2008 kl. 13:33
Ég trúi því líka að þú munir hitta þá aftur hinumegin elsku besta vinkona mín
Ég hlakka svooo óendanlega til að sjá barnið! Litli anginn, hann fer að láta sjá sig...finn það á mér bara svei mér þá!
Svala Breiðfjörð Hauksdóttir, 24.6.2008 kl. 21:35
Hæ elskan
Til hamingju með pabba þinn elskan... þetta er ömurlegt þegar svona gerist. Þið eruð aldeilis búin að fá ykkar skerf af ótímabærum dauðsföllum. Þið eruð ótrúlega dugleg :)
Ég hugsa mikið til þín og ykkar þessa dagana.. sendi þér hríðarstrauma - vonandi gengur allt vel hjá ykkur. Við erum þvílíkt spennt að fá Bangsímon Grísling.
Knús,IBB
Frú Inga Birna (IP-tala skráð) 26.6.2008 kl. 13:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.